Þjónustan
Þú bókar á netinu, skilar lyklinum í lyklabox og gengur út í flugstöð. Við sjáum um rest. Hvort sem þú vilt bara öruggt stæði á meðan þú ert úti, eða koma heim að hreinum bíl á réttum dekkjum, þá þarftu aldrei að bíða eftir neinum.
Bara stæði — einfaldasta leiðin til að leggja við Keflavíkurflugvöll
Engin innskráning, engin bið, enginn afgreiðslutími. Allt ferlið tekur nokkrar mínútur af ferðadeginum þínum.

Bókaðu á netinu.
Veldu dagsetningar, sláðu inn bílnúmerið og greiddu. Það tekur innan við mínútu.
Þú færð kóða.
Þú færð persónulegan kóða að lyklaboxi í tölvupósti fyrir brottför. Hann er líka alltaf á bókunarsíðunni.
Keyrðu á Arnarvelli 4.
Leggðu bílnum, opnaðu lyklaboxið með kóðanum og settu lykilinn inn. Búið.
Gakktu í flugstöðina.
Það er um 5 mínútna gangur. Engin skutla, ekkert að bíða eftir.
Við geymum bílinn.
Starfsfólk okkar sækir lykilinn og færir bílinn á afgirt geymslusvæði á meðan þú ert úti.
Bíllinn bíður þín.
Daginn áður en þú lendir færum við bílinn aftur á Arnarvelli og þú færð nýjan kóða fyrir heimkomuna í tölvupósti.
Labbaðu út og keyrðu heim.
Opnaðu boxið með nýja kóðanum, taktu lykilinn og farðu heim.
Af hverju tveir kóðar?
Hvor kóði gildir bara fyrir þína bókun og þitt skref. Enginn annar kemst í lykilinn þinn.
Þrif og dekkjaskipti — komdu heim að bílnum eins og hann á að vera
Bíllinn stendur hvort sem er kyrr á meðan þú ert úti. Nýttu tímann. Þú bætir þjónustunni við í bókuninni og þarft ekki að gera neitt meira.

Hakaðu við í bókuninni.
Veldu alþrif, dekkjaskipti eða bæði um leið og þú bókar stæðið.
Skýrt verð.
Verðið fer eftir stærð bílsins og dekkjanna og þú sérð það áður en þú greiðir. Ef bíllinn reynist í öðrum stærðarflokki látum við þig vita áður en nokkuð er rukkað aukalega.
Þú skilar bílnum eins og venjulega.
Lykill í box, gangur í flugstöðina.
Við vinnum verkið á meðan þú ert úti.
Bíllinn er þrifinn og/eða dekkin skipt á okkar eigin aðstöðu á geymslusvæðinu, af okkar eigin starfsfólki.
Klárt þegar þú lendir.
Bíllinn bíður á Arnarvöllum, hreinn og á réttum dekkjum fyrir árstíðina.
Alþrif
Bíllinn er þrifinn að innan sem utan. Þú stígur upp í hreinan bíl eftir flugið í stað þess að eyða fyrsta deginum heima í þrif.
Dekkjaskipti
Ferðu út á sumardekkjum og kemur heim í hálku? Við skiptum yfir á vetrardekk (eða öfugt) á meðan þú ert úti, svo þú keyrir heim á réttum dekkjum.
Viðhald og viðgerðir — fáðu tilboð, ekki óvænta reikninga
Þarf að skipta um bremsuklossa, laga ljós eða kíkja á skrýtið hljóð? Bíllinn er hjá okkur dögum saman. Við skoðum hann og þú ákveður í rólegheitum hvort við gerum við.

Biddu um tilboð í bókuninni.
Lýstu stuttlega hvað þú vilt láta skoða eða gera. Ástandsskoðun kostar 2.990 kr.
Bifvélavirki skoðar bílinn.
Eftir að þú ert farin(n) út skoðar bifvélavirki á okkar eigin verkstæði bílinn.
Þú færð fast tilboð.
Við sendum þér tilboð í tölvupósti: hvað þarf að gera, af hverju og hvað það kostar.
Þú ákveður.
Þú samþykkir eða hafnar, hvar sem þú ert í heiminum. Ekkert er gert án þíns samþykkis og ef þú svarar ekki er ekkert gert. Skoðunargjaldið greiðist óháð svari.
Við gerum við og þú keyrir heim.
Ef þú samþykkir er viðgerðin kláruð áður en þú lendir og bíllinn bíður þín tilbúinn á Arnarvöllum.
Af hverju að treysta okkur fyrir bílnum?
Rekið af Key Car Rental
Key Drop er rekið af Key Car Rental, sem heldur úti eigin bílaflota og verkstæði á hverjum degi. Við vitum hvað bíll þarf.
Okkar eigið starfsfólk
Bílnum er aðeins ekið af okkar eigin starfsfólki og hann geymdur á afgirtu svæði.
Allt er skráð
Allt er skráð: hvenær lykill fór í box, hvenær hann var sóttur og hvað var gert við bílinn.
Engir faldir liðir
Föst verð á stæði og þrifum, föst tilboð í viðgerðir. Engir faldir liðir.
Spurningar? Sendu okkur línu, við svörum öllum tölvupóstum.
Spurt og svarað
