Key Dropby Key Car Rental

Hvernig Key Drop virkar

Þrjú skref. Ekkert afgreiðsluborð, enginn starfsmaður sem þarf að mæta á vakt klukkan fjögur. Þú stjórnar öllu sjálf með einum hlekk í símanum.

1. Þú bókar

Þú velur hvenær þú skilar bílnum og hvenær þú sækir hann. Verðið birtist strax, áður en þú slærð inn nokkuð annað. Svo slærðu inn bílnúmerið. Við lesum það og sjáum stærð bílsins og felgustærð, svo verð á viðbótum er rétt fyrir þinn bíl.

Engin innskráning, ekkert lykilorð. Þú færð persónulegan bókunarhlekk í SMS og tölvupósti. Þar sérðu bókunina, breytir dagsetningum og finnur kóðann þegar þar að kemur. Bókunin tekur undir mínútu.

2. Þú leggur og skilur lykilinn eftir

Kvöldið áður en þú ferð færðu SMS með númeri lyklaboxins og kóða. Kóðinn gildir aðeins fyrir þína bókun og aðeins í stuttan tíma í kringum skilatímann.

Þú keyrir inn á svæðið og leggur í hvaða laust stæði sem er. Svo opnarðu boxið með kóðanum, setur lykilinn inn og lokar. Boxið skráir sjálft að lyklinum hafi verið skilað. Þú þarft ekki að staðfesta neitt. Ef þú vilt geturðu tekið tvær myndir af bílnum í hlekknum.

3. Þú flýgur

Flugstöðin er í 5 mínútna göngufæri. Við færum bílinn í stæði á lokuðu svæði og vinnum þau verk sem þú baðst um. Þú getur fylgst með í bókunarhlekknum, en þú þarft ekki að gera neitt fyrr en þú lendir.

Lyklaboxið

Lyklarnir eru geymdir í kóðalæstum boxum. Hver bókun fær sinn aðgang með ákveðnu tímabili. Þegar þú kemur heim færðu nýjan kóða og stæðisnúmer. Þegar þú tekur lykilinn skráir boxið það og bókunin lokast af sjálfu sér. Kóðinn hættir þá að virka.

Ef fluginu seinkar

Ef þú skráir flugnúmerið heim fylgjumst við með komutímanum. Seinki fluginu bíður bíllinn. Bókunin færist og nýr kóði kemur þegar þú lendir. Þú borgar aðeins dagana sem þú notar. Oft kostar aukadagur nær ekkert, af því að lengri ferð fær lægra dagsverð. Sjáðu dæmin á verðsíðunni.

Ef kóðinn týnist

Kóðinn er alltaf í bókunarhlekknum. Ef þú finnur ekki SMS-ið opnarðu bara hlekkinn. Virki kóðinn ekki geturðu beðið um nýjan kóða í SMS með einum smelli. Oftast er ástæðan einföld: rangt box, kóði frá fyrri bókun eða hurðin ekki alveg lokuð. Vaktin svarar allan sólarhringinn. Þú þarft ekki að bíða á svæðinu.

Af hverju er engin afgreiðsla?

Af því að enginn vill standa í röð klukkan fjögur um nótt. Þegar allt er í símanum og lyklarnir í boxi þarf enginn að bíða eftir neinum, hvorki þú né við. Svæðið er opið allan sólarhringinn og þú kemur og ferð þegar þér hentar.

Það er ekki sparnaður, það er þjónustan. Viltu vita meira um svæðið sjálft? Lestu um bílastæðið við Keflavíkurflugvöll eða algengar spurningar.

Bókaðu stæðið

Tekur undir mínútu. Engin innskráning.

Bóka