Spurt og svarað
Stutt svör við því sem fólk spyr oftast um. Finnurðu ekki svarið? Allt ferlið er útskýrt á síðunni hvernig það virkar.
Hvað ef flugið seinkar?
Ekkert vandamál. Bíllinn bíður og þú borgar bara dagana sem þú notar.
Er bíllinn tryggður á svæðinu?
Svæðið er lokað, upplýst og vaktað með myndavélum. Lyklar eru í kóðalæstu boxi.
Þarf ég að búa til aðgang?
Nei. Þú fær persónulegan hlekk í SMS og tölvupósti og allt gerist þar.
Hvað ef ég týni kóðanum?
Hann er alltaf í bókunarhlekknum. Þú getur líka sent SMS og fengið hann aftur.
Hvað kostar að leggja?
Grunngjald er 6.900 kr á bókun og 490 kr á dag. Dagsverðið lækkar þegar ferðin lengist og lækkunin gildir afturvirkt á alla dagana. Öll verð eru með VSK.
Hvenær fæ ég kóðann að lyklaboxinu?
Kóðinn kemur í SMS kvöldið áður en þú skilar bílnum. Hann birtist líka í bókunarhlekknum þínum og gildir aðeins fyrir þína bókun.
Þarf ég að hitta starfsmann?
Nei. Þú leggur, setur lykilinn í boxið og gengur af stað. Ekkert afgreiðsluborð og engin bið.
Hvernig fæ ég bílinn þegar ég kem heim?
Nýr kóði kemur í SMS þegar þú lendir. Þú opnar boxið, tekur lykilinn og keyrir heim. Boxið skráir sjálft þegar lykillinn er tekinn.
Get ég breytt dagsetningunum?
Já. Þú breytir þeim í bókunarhlekknum og sérð verðmuninn áður en þú staðfestir.
Get ég hætt við bókun?
Já. Frí afpöntun samkvæmt skilmálum Key Drop. Þú hættir við í bókunarhlekknum.
Hvaða viðbætur eru í boði?
Alþrif frá 25.990 kr, dekkjaskipti eftir felgustærð, fullur tankur fyrir 2.990 kr auk eldsneytis á dæluverði, og hleðsla rafbíla fyrir 4.490 kr. Hlaðinn að minnsta kosti 80% fyrir heimkomu.
Hvað kostar verkstæðisvinna?
Við setjum ekkert verð fyrr en við höfum séð bílinn. Þú færð fast tilboð í SMS og ekkert er gert fyrr en þú samþykkir. Svarar þú ekki gerum við ekkert.
Öll verð og þrep eru á verðsíðunni. Upplýsingar um staðsetningu og svæðið eru á síðunni bílastæði við Keflavíkurflugvöll.
